Í félaginu eru blikksmiðjur, blikksmiðjudeildir og sjálfstætt starfandi blikksmíðameistarar. Ennfremur eiga blikksmíðameistarar, sem eru eigendur blikksmiðju aðild að félaginu – svokölluð einstaklingsaðild.

Markmið félagsins eru að:

  • Efla samvinnu meðal félagsmanna, m.a. með því að sameina allar blikksmiðjur og blikksmíðadeildir landsins til þátttöku í félaginu.
  • Gæta hagsmuna blikksmíðafyrirtækja gagnvart öllum þeim sem greinin þarf að skipta við og vera sameiginlegur málsvari útávið.
  • Veita aðildarfyrirtækjum sem víðtækasta þjónustu í rekstrarlegum og tæknilegum efnum og stuðla að því að greinin verði samkeppnisfær á hverjum tíma umn verkefni og vinnuafl.
  • Vinna að því að menntun og hæfni starfsmanna og stjórnenda blikksmiðja verði eins og best gerist á hverjum tíma.
Árgjald er með þessum hætti:

Til FBE  0,05% af iðnaðarveltu viðkomandi blikksmiðju. Einstaklingsgjald kr. 30.000 Lágmarksgjald kr. 10.000 á ári.

Til SI 0,15% af iðnaðarveltu fyrirtækisins Stjórn SI hefur ákveðið að veita 40% afslátt af félagsgjaldi.
Skilvísir greiðendur fá 10% afslátt sem kemur fram sem staðgreiðsluafsláttur á næsta reikningi.
Lágmarksgjald er kr. 30.600 (ekki er veittur afsláttur af lágmarksgjaldi). Sjá nánar á vef SI

Til SA 0,19% af launagreiðslu síðasta árs, þ.e. launakostnaður án launatengdra gjalda. (ef launakostnaður er hærra hlutfall en 35,294% af veltu reiknast gjald af veltu í stað launa og er þá 0,067%). Lágmarksgjald er kr. 35.000 (ekki er veittur afsláttur af lágmarksgjaldi). Sjá nánar á vef SA